Svar Tækni tekur við sölu og þjónustu Curio Time á Íslandi
Curio Time OÜ og Svar Tækni hafa undirritað 200 milljóna króna sérleyfissamning sem felur í sér að Svar Tækni tekur alfarið við sölu og þjónustu á Curio Time á Íslandi frá og með 1. nóvember 2024.
Curio Time er eitt vinsælasta tímaskráningarkerfið á Íslandi með yfir 5.000 skráða notendur og í notkun hjá um 250 fyrirtækjum. Með þessari breytingu verður þjónusta og stuðningur við íslenska markaðinn markvissari og skilvirkari, en Svar Tækni hefur áralanga reynslu í sölu og innleiðingu upplýsingakerfa.
Þessi samningur tryggir að íslensk fyrirtæki muni áfram njóta sérsniðinnar þjónustu og ráðgjafar í innleiðingu og rekstri Curio Time.
Fyrirtæki sem þurfa aðstoð eða upplýsingar eru hvött til að hafa samband við þjónustuver á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..